![ferðaþjonusta0814 014](http://www.framsyn.is/wp-content/uploads/2014/08/ferðaþjonusta0814-014-150x150.jpg)
Það urðu miklar og góðar umræður við kaffiborðið þegar starfsmenn á skrifstofu Þingeyjarsveitar settust niður með fulltrúum Framsýnar til að ræða málin.
Umræður urðu m.a. um verkalýðsmál, samstarf sveitarfélaga og hagsmunaaðila á svæðinu og velferðarmál. Það fer ekki á milli mála að mjög góður andi er meðal starfsmanna á skrifstofunni og þeir viðskiptavinir sem komu á meðan fulltrúar Framsýnar stöldruðu við voru afar ánægðir með þjónustuna á skrifstofunni sem þeir sögðu vera til fyrirmyndar. Í ljósi þessa er spurning hvort ekki eigi að skipta um nafn á Þingeyjarsveit sem telur rúmlega 900 íbúa, það er Gleðisveitin.
![ferðaþjonusta0814 016](http://www.framsyn.is/wp-content/uploads/2014/08/ferðaþjonusta0814-016-1024x682.jpg)
Það urður miklar og góðar umræður við kaffiborið á skrifstofu Þingeyjarsveitar.
![ferðaþjonusta0814 015](http://www.framsyn.is/wp-content/uploads/2014/08/ferðaþjonusta0814-015-1024x682.jpg)
Ingólfur Pétursson var á svæðinu og hress að vanda.
![ferðaþjonusta0814 014](http://www.framsyn.is/wp-content/uploads/2014/08/ferðaþjonusta0814-014-1024x682.jpg)
Varaformaður Framsýnar með tveimur brosandi starfsmönnum Þingeyjarsveitar(Gleðisveitarinnar), þeim Gerði og Dagbjörtu sveitarstjóra.