Á aðalfundi Framsýnar í gær var samþykkt að skora á sveitarstjórnarmenn í héraðinu að mótmæla fyrirhuguðum sameiningum heilbrigðisstofnana a á Norðurlandi. Sjá áskorunina:
Áskorun
til frambjóðenda í sveitarstjórnarkosningum í Þingeyjarsýslum vorið 2014
„Aðalfundur Framsýnar stéttarfélags Þingeyinga mótmælir harðlega fyrirhuguðum sameiningum heilbrigðisstofnana á Norðurlandi.
Aðalfundurinn telur að ekki hafi komið fram rök fyrir hagkvæmni fyrirhugaðra sameininga eða að þær muni á nokkurn hátt bæta þá þjónustu sem nú þegar er á svæðinu. Með sameiningunni eru jafnframt allar líkur á að opinberum störfum í Þingeyjarsýslum fækki enn frekar.
Það er siðferðileg skylda sveitarstjórnarmanna að standa vörð um störf og þjónustu í sínu byggðarlagi. Í ljósi þess beinir Framsýn því til frambjóðenda, að þeir nýti þau áhrif sem þeir hafa til að koma í veg fyrir fyrirhugaðar sameiningar, með hag samfélagsins að leiðarljósi.
Framsýn skorast ekki undan ábyrgð og er reiðubúið að koma að því að verja þessa mikilvægu stofnun í héraðinu.“
Félagsmenn Framsýnar vilja standa vörð um opinbera þjónustu í Þingeyjarsýslum.