Mikilvægur dómur fyrir smábátasjómenn

Óheimilt er að draga olíukostnað frá aflverðmæti til skipta á smábátum.  AFL Starfsgreinafélag stefndi, fyrir hönd félagsmanns útgerð á Stöðvarfirði vegna vanreiknaðra launa, en við uppgjör var stuðst við skiptaprósentu skv. kjarasamningi SSÍ við Landssamband smábátaeigenda – en kostnaður skv. kjarasamningi SSÍ við LÍÚ dreginn frá aflverðmæti.  Í kjarasamningi SSÍ við LS kemur skýrt fram að skipta eigi úr heildarverðmæti aflans og staðfesti dómurinn það.  Þetta er því mikilvægur varðandi réttarstöðu smábátasjómanna.

Alls námu vangreidd laun á þriggja mánaða tímabili tæpum 1.600 þúsundum króna.  Héraðsdómur Austurlands féllst á sjónarmið AFLs og fékk félagsmaðurinn dæmd fullan aflahlut skv. kröfum félagsins. 

Skiptaprósenta skv. kjarasamningi við LS átti í þessu tilfelli að vera 21,6% af aflaverðmæti – en ef miðað hefði verið við kjarasamning við LÍÚ hefði útgerðinni verið heimilt að reikna skipti af 70% aflverðmætis en í því tilfelli hefði skiptaprósenta verið 30,3%.

Báturinn sem um ræðir í þessu máli er gerðinni Cleopatra – plastbátur tæpir 12 m að lengd og með 4 menn í áhöfn. Báturinn var á línuveiðum með beitingavél um borð.

Félagið mun á næstu vikum setja sig í samband við smábátasjómenn og útgerðir og kanna hvernig uppgjörsmálum er háttað.

Rétt er að taka fram að Sjómannadeild Framsýnar hefur ekki orðið var við annað en að smábátaeigendur á félagssvæðinu fari eftir gildandi kjarasamningum með einni undantekningu sem athugasemdir voru gerðar við.   

Sjá dóminn í heild

 Mikilvægt er að smábátasjómenn séu á vaktinni og láti vita ef þeir telja á sér brotið.

Deila á