Samningsumboð afturkallað?

Stjórn Þingiðnar hefur verið boðuð til fundar mánudaginn 17. febrúar kl. 18:00 í fundarsal stéttarfélaganna.  Nokkur mál verða á dagskrá fundarins en dagskráin er meðfylgjandi þessari frétt.

Dagskrá fundarins er eftirfarandi: 

  1. Fundargerð síðasta fundar
  2. Kjaramál
  3. Sumarferð stéttarfélaganna
  4. Leikhúsferð fyrir félagsmenn
  5. Aðkoma félagsins að sérstöku verkefni
  6. Málefni félagsins
    1. Breytingar á skrifstofu
    2. Flugmiðar til félagsmanna
    3. Leiga á skrifstofu
  7. Önnur mál

Stjórn Þingiðnar mun væntanlega samþykkja að afturkalla samningsumboðið frá Samiðn þar sem félagsmenn Þingiðnar felldu nýgerðan kjarasamning Samiðnar og Samtaka atvinnulífsins sem félagið átti aðild að.

Deila á