Samningsaðilar reiðir yfir hækkunum – verða kjarasamningarnar felldir?

Framkvæmdastjórn Starfsgreinasambandsins mótmælir harðlega með ályktun í gær hækkunum hjá opinberum aðilum og fyrirtækjum. Sjá ályktun: „Blekið er ekki þornað af nýgerðum kjarasamningum þegar stjórnvöld senda kaldar kveðjur til launafólks í formi gjaldskrárhækkana. Komugjöld á heilsugæslustöðvar hækkuðu um 15-20% þann 1. janúar síðastliðinn. Rétt fyrir jól var undirritaður kjarasamningur með hógværum launahækkunum en með þeim samningi fylgdi ásetningur um að halda aftur af hækkunum hjá fyrirtækjum og í opinberum gjaldskrám.

Stærstu sveitarfélög landsins hafa dregið til baka fyrirhugaðar hækkanir og í tengslum við kjarasamninga undirritaði fjármálaráðherra bréf með „skuldbindandi fyrirheitum“ um svipað. Reyndar segir orðrétt í bréfinu sem fjármálaráðherra undirritaði þann 21. desember síðastliðinn: „Næstu tvö ár verði gjaldskrárhækkanir ríkisins undir verðbólgumarkmiði Seðlabanka Íslands.“ Verðbólgumarkmið Seðlabankans er 2,5% á tólf mánuðum en rúmri viku eftir undirritum yfirlýsingarinnar hækka komugjöld á heilsugæslustöðvar um 15-20%.

Framkvæmdastjórn Starfsgreinasambands Íslands krefst þess að þessi hækkun verði afturkölluð og staðið verði við gefin loforð í aðdraganda kjarasamninga.“

Ljóst er að víða um land er megn óánægja með kjarasamningana og hækkanir sem komið hafa í kjölfarið á vöru og þjónustu.

Deila á