Fjórða þing Starfsgreinasambands Íslands hefst á miðvikudaginn

Fjóðra þing Starfsgreinasambands Íslands verður sett í Hofi á Akureyri þann 16. október 2013 klukkan 15:00 undir yfirskriftinni Samstaða og Samvinna. Þingið mun fjalla um kjaramál í aðdraganda kjarasamninga, atvinnumál almennt, húsnæðismál og fleira. Þegar formaður Starfsgreinasambandsins, Björn Snæbjörnsson hefur sett þingið munu þau Eygló Harðardóttir félags- og húsnæðismálaráðherra og Gylfi Arnbjörnsson forseti ASÍ flytja ávörp. 

Dagskrá þingsins (pdf). 

Starfsgreinasamband Íslands (SGS) er landssamband almenns og sérhæfðs verkafólks. SGS er stærsta landssamband innan ASÍ, en 19 verkalýðsfélög eiga aðild að sambandinu með um 50 þúsund félagsmenn. 

Aðildarfélög SGS eru þessi:
Efling-stéttarfélag, Vlf. Akraness, Stéttarfélag Vesturlands, Vlf. Snæfellinga, Vlf. Vestfirðinga, Vlsfél. Bolungarvíkur, Stéttarfélagið Samstaða, Aldan stéttarfélag, Eining-Iðja, Framsýn stéttarfélag, Vlf. Þórshafnar, Afl-Starfsgreinafélag, Vlf. Suðurlands, Báran stéttarfélag, Drífandi stéttarfélag, Vfl. Grindavíkur, Vlsfél. Keflavíkur og nágrennis (VSFK), Vlsfél. Sandgerðis og Vlf. Hlíf. 

Um 130 þingfulltrúar munu sitja þingið, þar af fjórir frá Framsýn og einn frá Verkalýðsfélagi Þórshafnar.

Deila á