Frá íbúaþingi til aðgerða

Þriðjudaginn 26. febrúar nk. er boðið til íbúafundar á Raufarhöfn.  Þetta er kynningar- og umræðufundur og er liður í verkefni um þróun byggðar á Raufarhöfn, sem Byggðastofnun stendur að, í góðu samstarfi við heimaaðila. Framsýn hefur fylgst vel með málinu og tekið þátt í þeim fundum sem haldnir hafa verið með íbúum Raufarhafnar auk þess að vera í góðu sambandi við þá enda flestir þeirra sem eru á vinnumarkaði í félaginu.

Á íbúaþingi sem haldið var í janúar, voru viðraðar og ræddar ýmsar hugmyndir um eflingu byggðar á Raufarhöfn.  Verkefnisstjórn hefur unnið úr hugmyndunum og  á fundinum á þriðjudag verður brugðist við þeim.  Íbúar hafa einnig tekið við boltanum í ýmsum málum og hafa vonandi frá einhverju að segja líka. 

Skref fyrir skref er að verða til forgangsröðun varðandi verkefni og aðgerðir, byggð á skilaboðum íbúa. Byggðastofnun hefur ráðið verkefnisstjóra á Raufarhöfn til eins árs, Kristján Þ. Halldórsson og mun hann fylgja málum eftir.  Áfram verður lögð áhersla á virka þátttöku íbúa, enda er það forsenda þess að árangur náist. 

Fundurinn á þriðjudag er mikilvægur áfangi í byggðaþróunarverkefninu og vonandi sjá allir áhugasamir sér fært að mæta.  Fundurinn verður í Félagsheimilinu, kl. 17.00  Boðið verður upp á kaffi og meðlæti.

Deila á