Útvarp Húsavík komið í loftið – Hvað er í pottunum?

Útvarp Húsavík FM 103 hóf göngu sína á ný í gær eftir vænan svefn. Fjölbreytt dagskrá verður á vegum útvarpsins alla miðvikudaga frá kl 18:00 til 23:00. Margir áhugaverðir þættir munu fara í loftið þar á meðal, Bræður og Bragason og þættir í umsjón Hafliða Jósteins og Björgvins Leifssonar. Í útvarpinu í gær voru starfsmenn Skrifstofu stéttarfélaganna yfirheyrðir af Bræðrunum og Bragasyni um væntanlegan kvöldverð. Það er hvað er í pottunum? Þessi liður verður á dagskrá þeirra félaga í vetur og hér má hlusta á svör starfsmanna sem riðu á vaðið.

 http://www.youtube.com/embed/IIw_0LRJJYI

Deila á