Áframhaldandi hækkanir hins opinbera

Ríki og sveitarfélög auka enn álögur á heimilin með hækkunum á gjaldskrám og neyslusköttum í upphafi árs. Þessar hækkanir skila sér beint út í verðlag og áhrifa þeirra gætir í verðbólgutölum janúarmánaðar sem Hagstofan birti í gær. Samkvæmt þeim hækka opinberar álögur verðlag í janúar um 0,4%. Þau skilaboð sem í þessu felast eru í algjörri andstöðu við þann samtakamátt um aðhald í verðlagsmálum sem lagt var upp með við endurskoðun kjarasamninga fyrr í mánuðinum. Opinberir aðilar ættu þar að ganga á undan með góðu fordæmi.

Hækkanirnar nú koma til viðbótar síendurteknum hækkunum á opinberum álögum sem valdið hafa aukinni verðbólgu síðustu ár og ASÍ fjallaði um í liðinni viku.

Mest áhrif nú hafa hækkanir á fasteignagjöldum sveitarfélaganna, þ.e. sorphirðugjöldum, holræsagjöldum og vatsskatti. Flest sveitarfélög hækkuðu gjöld fyrir þessa þjónustu nú um áramót en skv. vísitölu neysluverðs hækkuðu þau í heildina um 7,3% og hafa 0,13% áhrif til hækkunar á verðlagi.

Opinberar álögur á tóbak hækkuðu um áramótin en þá hækkaði tóbaksgjald um 20%. Sú hækkun skilar sér í um 9% hækkun á útsöluverði tóbaks sem veldur 0,12% hækkun á verðlagi en í heildina hækkaði tóbak þó mun meira í janaúar eða um tæp 18%.

Kostnaður barnafjölskyldna fyrir leikskóla og skóladagvist hækkar sömuleiðis og hefur áhrif á verðbólguna. Leikskólagjöld hækka um 5,1% og gæsla í grunnskólum um 4,3%, samanlegt hafa þessir liðir 0,05% áhrif til hækkunar á verðlagi.

Heilbrigðisþjónusta hækkaði skv. vísitölu neysluverðs um 2,7% í janaúar og hefur það 0,06% til hækkunar á verðlagi. Þetta skýrist af almennum hækkunum á gjaldskrám heilbrigðisþjónustunnar um 5-7% um áramót, að heilsugjæslunni undanskilinni.

Flest orkufyrirtæki hækkuðu gjaldskrá sína fyrir raforku og heitt vatn um áramót auk þess sem skattur á raforkusölu hækkaði þá úr 0,12 kr/kWst. í kr. 0,126 kr/KWst. Þetta skilar sér í 1,1% hækkun á rafmagni og hita í vísitölunni sem veldur um 0,03% hækkun á verðlagi. 

Áhrif helstu hækkanna á opinberum álögum á verðlag í janúar 2013

Liður Hækkun Vísitöluáhrif
Fasteignagjöld – sorp, holræsi, vatn 7,3% 0,13 %
Tóbak 18% / 9%* 0,23%/ 0,12%*
Heilbrigðisþjónusta 2,7% 0,06%
Leik- og grunnskólar 5,1% / 4,3% 0,05%
Rafmagn og hiti 1,1% 0,03%
Samtals   0,39%

 

*Áhrif sem rekja má til hækkunar á tóbaksgjaldi

 Enn von á meiru
Þann 1. mars nk. tekur gildi hækkun á vörugjöldum á sykraðar matvörur og mun sú hækkun að líkindum skila sér út í verðlag á vordögum. Erfitt er að áætla áhrif þeirra breytinga en skv. frumvarpinu sem samþykkt var í desember er talið að hækkunin muni leiða til 0,01% hækkunar á verðlagi. Þá hækkar viriðisaukaskattur á gistiþjónustu þann 1. september nk. og er sömuleiðis gert ráð fyrir að sú hækkun leiði til 0,01% hækkunar á verðlagi. (Heimild ASÍ)

Deila á