Fjársöfnun til stuðnings bændum

Ákveðið hefur verið að efna til söfnunar til að styðja við bakið á bændum á þeim svæðum sem urðu fyrir áföllum í óveðrinu, sem gekk yfir Norðurland snemma í september. Sérstök verkefnisstjórn hefur verið skipuð til að hafa umsjón með söfnuninni og móta reglur um hana. Verkefnisstjórnina skipa þau; Guðni Ágústsson fv. landbúnaðarráðherra formaður, Dagbjört Bjarnadóttir oddviti Skútustaðahrepps, Jón Aðalsteinn Baldvinsson fv. vígslubiskup á Hólum, Friðrik Friðriksson fv. sparisjóðsstjóri á Dalvík og Þórarinn Ingi Pétursson formaður Landssamtaka sauðfjárbænda.

Söfnunin hefst í dag kl. 14 þegar Kaupfélag Skagfirðinga og Landsbankinn afhenda fyrstu framlögin. Afhendingin fer fram á Sauðárkróki í tengslum við Bændadaga KS sem haldnir eru þar í dag og á morgun. Þeir sem vilja styðja við bakið á málefninu geta lagt framlög inn á reikning nr. 0161-15-380370, kt. 630885-1409, í Landsbankanum á Sauðárkróki. Landssamtök sauðfjárbænda vænta góðra viðbragða fyrirtækja og einstaklinga enda ljóst að margir bændur hafa orðið fyrir miklu tjóni. (saudfe.is)

Deila á