Starfsmenn SGS væntanlegir í heimsókn

Stjórn og trúnaðarmannaráð Framsýnar kemur saman til næsta fundar fimmtudaginn 27. september. Fundurinn hefst kl. 20:00 verður í fundarsal félagsins. Sérstakir gestir fundarins verða Drífa Snædal framkvæmdastjóri Starfsgreinasambands Íslands  og Árni Steinar Stefánsson starfsmaður sambandsins. Þau voru bæði nýlega ráðin til sambandsins og hafa því ekki komið áður á fund með forsvarsmönnum Framsýnar- stéttarfélags. Þau eru boðin velkomin til Húsavíkur. Sjá dagskrá fundarins: 

Dagskrá:

  1. Fundargerð síðasta fundar
  2. Inntaka nýrra félaga
  3. Atvinnumál á Raufarhöfn
  4. Kjör DVSF á ASÍ þingið
  5. AN- fundur/kjör fulltrúa
  6. Málefni Skrifstofu stéttarfélaganna
  7. Þing ASÍ-UNG
  8. Kjaramál
  9. Námskeið fyrir skrifstofu- og verslunarfólk
    10.  Erindi frá SSÍ vegna þings ASÍ
    11.  Barmmerki fyrir félagið
    12.  Umboð til SGS varðandi samning við NPA
    13.  Kynning á starfsemi Framsýnar/AÁB
    14.  Ávörp gesta/DS-ÁSS
    15.  Önnur mál
Deila á