Stjórn og trúnaðarmannaráð Framsýnar kemur saman til næsta fundar fimmtudaginn 27. september. Fundurinn hefst kl. 20:00 verður í fundarsal félagsins. Sérstakir gestir fundarins verða Drífa Snædal framkvæmdastjóri Starfsgreinasambands Íslands og Árni Steinar Stefánsson starfsmaður sambandsins. Þau voru bæði nýlega ráðin til sambandsins og hafa því ekki komið áður á fund með forsvarsmönnum Framsýnar- stéttarfélags. Þau eru boðin velkomin til Húsavíkur. Sjá dagskrá fundarins:
Dagskrá:
- Fundargerð síðasta fundar
- Inntaka nýrra félaga
- Atvinnumál á Raufarhöfn
- Kjör DVSF á ASÍ þingið
- AN- fundur/kjör fulltrúa
- Málefni Skrifstofu stéttarfélaganna
- Þing ASÍ-UNG
- Kjaramál
- Námskeið fyrir skrifstofu- og verslunarfólk
10. Erindi frá SSÍ vegna þings ASÍ
11. Barmmerki fyrir félagið
12. Umboð til SGS varðandi samning við NPA
13. Kynning á starfsemi Framsýnar/AÁB
14. Ávörp gesta/DS-ÁSS
15. Önnur mál