Allir á Raufarhöfn – hrútadagurinn framundan

Hrútadagurinn á Raufarhöfn verður laugardaginn 29. september. Þar verða til sölu hrútar frá mörgum þeim bæjum sem hafa söluleyfi úr Norðausturhólfi. Full ástæða er til að hvetja fólk til að gera sér ferð á Raufarhöfn á hrútadaginn. Þetta er skemmtun við allra hæfi. Sjá dagskrá og myndir:

Dagskrá:
Söluaðilar mæta með hrútana sína frá kl. 13.00 og þá geta hugsanlegir kaupendur farið að skoða. Uppboð verður kl.15.00 á þeim hrútum sem fleiri en einn hyggst kaupa og í beinu framhaldi verður uppboð á 2 – 4 athyglisverðustu hrútunum. Níels Árni Lund frá Miðtúni á Sléttu mun sjá um uppboðið. Andrea Stefánsdóttir  leiðsögumaður  á Raufarhöfn verður í Heimskautsgerðinu frá kl. 14.00 til 15.00 og mun segja frá sögu þess.  Kl. 16.00 hefst sögurölt um Raufarhöfn, þar sem Reynir Þorsteinsson fyrrum sveitarstjóri, gengur  um elsta hluta Raufarhafnar og segir frá. Um kl 16.30 verður afhjúpað  listaverk sem reist verður við Óskarstöðina, til heiðurs  síldarstúlkunum sem söltuðu niður síldar á síldarárunum.         Menningarráð Eyþings styrkir þennan dagskrárlið. Eftir kl. 18.00 er hlaðborð á Hótel Norðurljósum. Kl. 21.00 Verður Hagyrðingakvöld í félagsheimilinu Hnitbjörgum.  Þar verða hagyrðingarnir Jóhannes Sigfússon, Jónas Friðrik Guðnason, Ágúst Marinó Ágústsson, Birgir Sveinbjörnsson og jafnvel fleiri. Í beinu framhaldi eftir hagyrðingana verður dansleikur þar sem Dansbandið  frá Akureyri spila fyrir dansi. Tilboð er á gistingu þessa helgi á Hótel Norðurljósum. Heimasíða hrútadagsins er hrutadagurinn.isTöluvert af fólki kemur á hverju ári á hrutadaginn á Raufarhöfn.

Níels Árni Lund frá Miðtúni hefur lengi stjórnað umboðinu á fallegustu hrútunum.

Á hrútadeginum er farið í ýmsa skemmtilega leiki. Hér er Dóri á Bjarnastöðum að gera það gott.

Stundum er súpa af bestu gerð í boði fyrir gestina.

Það er ekki bara hægt að kaupa hrúta á hrútadeginum heldur ýmislegt fleira af handverksfólki.

Deila á