Fulltrúar Framsýnar voru á ferð um félagssvæðið í gær og komu víða við. Á Kópaskeri hittu þeir fyrir unglinga úr Vinnuskóla Norðurþings ásamt flokksstjóra. Þau voru ánægð með lífið enda gott veður eftir heldur leiðinlega tíð.
Fríður hópur unglinga voru við störf á Kópaskeri í gær.