Kynning og atkvæðagreiðsla á Þórshöfn

Verkalýðsfélag Þórshafnar stóð fyrir kynningu í gær á nýgerðum kjarasamningi félagsins og Samninganefndar íslenskra sveitarfélaga.   Félagið gerði kjarasamninginn í samstarfi við  Framsýn. Eftir kynninguna í gær hófst atkvæðagreiðsla um samninginn  sem stendur yfir í tvo daga. Annað kvöld verður því ljóst hvort samningurinn verður samþykktur eða ekki.

Formaður Framsýnar fór yfir helstu atriði samnigsins í gær með starfsmönnum Langanesbyggðar og Svalbarðshrepps.

Deila á