Vinsamlegur fundur með fulltrúum sveitarfélaga

Framsýn boðaði til fundar í dag með fulltrúum Hvamms og sveitarfélaga í Þingeyjarsýslum um stöðu kjaraviðræðna félagsins við Samninganefnd sambands íslenskra sveitarfélaga. Á fundinum var farið yfir kröfugerð félagsins fh. starfsmanna og þann hnút sem kominn er upp í viðræðunum þar sem ágreiningur er um launatöfluna sem kemur mjög illa við eldri starfsmenn, sérstaklega konur. Fundarmenn skiptust á skoðunum um málið og fulltrúar sveitarfélaganna voru ánægðir með að fá kynningu á sjónarmiðum Framsýnar en ítrekuðu að samningsumboðið sveitarfélaganna væri hjá Samninganefnd sambands íslenskra sveitarfélaga.  Síðar í dag hefur Framsýn svo boðað til félagsfundar með starfsmönnum sveitarfélaga áður en þeir halda suður til Reykjavíkur en fundur hefur verið boðaður í kjaradeilunni hjá Ríkissáttasemjara á morgun.

Framsýn fundaði í dag með fulltrúum frá Norðurþingi, Lagnganesbyggð, Tjörneshrepp, Skútustaðahrepp og Þingeyjarsveit um kröfugerð félagsins og áherslur Samninganefndar sambands íslenskra sveitarfélaga varðandi nýja launatöflu sem kemur illa við reynda starfsmenn hjá sveitarfélögunum.

Deila á