Útför Ernu Þorvaldsdóttur fór fram í dag

Erna Þorvaldsdóttir sem fædd var 5. júlí 1936 var jarðsungin frá Húsavíkurkirkju í dag. Hún lést 31. maí 2011. Erna starfaði lengi að verkalýðsmálum sem trúnaðarmaður starfsmanna á Sjúkrahúsi Húsavíkur auk þess sem hún var í aðalstjórn Verkalýðsfélags Húsavíkur frá árinu 1982 til ársins 1989. Ernu eru þökkuð vel unnin störf í þágu verkafólks í Þingeyjarsýslum. Þá vottum við Davíð og fjölskyldu okkar dýpstu samúð. Framsýn- stéttarfélag

Minningarorð:
Ég gæti ekki orðað betur það sem ég sagt vildi hafa á þessari kveðjustundu er ég kveð kæra vinkonu og starfsfélaga Ernu Þorvaldar.

Þökk fyrir störf þín, dugnað og dáð

og djörfung í orði og verki,

nafn þitt mun lengi hjá lýð vera skráð

og lifa þitt hugsjóna merki.

Ég kveð þig, hugann heillar minning blíð,

hjartans þakkir fyrir liðna tíð,

lifðu sæl á ljóssins friðar strönd,

leiði sjálfur Drottinn þig við hönd.

(Guðrún Jóhannsdóttir)

Kristbjörg Sigurðardóttir (Bogga).

Deila á