Kjarasamningur samþykktur

Félagsmenn Framsýnar stéttarfélags hafa í atkvæðagreiðslu samþykkt nýgerðan kjarasamning við Samtök atvinnulífsins. Kjarasamningurinn gildir fyrir félagsmenn á almennum vinnumarkaði.  Á kjörskrá voru 830, af þeim kusu 146 eða 17,59% og féllu atkvæði þannig:

Já sögðu                      127                        87%
Nei sögðu                      17                         12%
Auðir seðlar                   2                           1%

Kjarasamningurinn hefur nú tekið gildi, því áður höfðu Samtök atvinnulífsins samþykkt hann. Launahækkanir taka gildi 1. júní en þá hækka taxtar um kr. 12.000,- og laun umfram taxta hækka um 4,25%.  Þann 1. júní fá þeir sem starfa eftir þessum samningi kr. 50.000 eingreiðslu sem kemur til vegna vinnu í mars-maí.  Orlofsuppbótin fyrir árið 2011 er kr. 26.900 og til viðbótar greiðist kr. 10.000,- álag á orlofsuppbótina.

Nánar um samninginn má finna hér á heimsíðunni.

Ágúst S. Óskarsson formaður kjörstjórnar og Þórður Adamsson telja atkvæði um kjarasamning Framsýnar og SA.  Auk þeirra situr Svala Björgvinsdóttir í kjörstjórn Framsýnar.

Deila á