Framsýn boðar hér með til félagsfunda um kjarasamning félagsins og Samtaka atvinnulífsins. Farið verður yfir nýgerðan kjarasamning og gert grein fyrir atkvæðagreiðslu um hann. Atkvæðagreiðsla um kjarasamninginn hefst kl. 12:00 þriðjudaginn 17. maí og stendur yfir til kl. 17:00 fimmtudaginn 26. maí 2011. Hægt verður að kjósa á fundunum og þá verður opinn kjörstaður á Skrifstofu stéttarfélaganna þar sem félagsmenn geta kosið. Félagsmenn sem búa utan Húsavíkur og komast ekki á félagsfundina sem boðað verður til geta fengið kjörgögn í pósti, óski þér þess. Félagsmenn eru vinsamlegast beðnir um að hafa samband ef eitthvað er óljóst við kynninguna eða atkvæðagreiðsluna.
Fundarstaðir:
Raufarhöfn: Miðvikudaginn 18. maí. Fundarstaður, kaffistofa GPG-Fiskverkun. Fundartími kl. 15:00.
Kópasker: Miðvikudaginn 18. maí. Fundarstaður, kaffistofa Fjallalambs hf. Fundartími kl. 13:00.
Öxarfjörður: Miðvikudaginn 18. maí. Fundarstaður, kaffistofa Silfurstjörnunnar hf. Fundartími kl. 11:30.
Kelduhverfi: Miðvikudaginn 18. maí. Fundarstaður, kaffistofa Rifós hf. Fundartími kl. 09:30.
Húsavík: Fimmtudaginn 19. maí. Fundarstaður, félagsaðstaða Framsýnar. Fundartími kl. 20:00. Boðað verður til sérstaks fundar með erlendu vinnuafli á Húsavík í næstu viku. Fundartími verður ákveðin síðar.
Mývatnssveit: Fimmtudaginn 19. maí. Fundarstaður, Sel-hótel Mývatn. Fundartími kl. 17:00.
Reykjadalur: Föstudaginn 20. maí. Fundarstaður, Félagsheimilið Breiðumýri. Fundartími kl. 20:00. Einnig verður fundað í Laugafiski hf. þriðjudaginn 17. maí kl. 10:00.
Allir félagsmenn Framsýnar eru velkomnir á fundina. Rétt er að taka fram að kjarasamningurinn nær ekki til félagsmanna er starfa við sjómennsku eða hjá sveitarfélögum og ríkinu. Vilji vinnustaðir fá sérstaka kynningu á samningnum eru þeir vinsamlegast beðnir um að hafa samband við Skrifstofu stéttarfélaganna.
Framsýn- stéttarfélag