Eins og við sögðum frá í morgun, þá er stór dagur í sögu verkalýðsbaráttu í Þingeyjarsýslum í dag enda 100 ár liðin frá stofnun Verkamannafélags Húsavíkur. Því var viðskiptavinum skrifstofunnar boðið upp á kaffi og afmælistertu í dag. Sjá myndir.
Nína starfsmaður stéttarfélaganna fær sér kaffi og tertu með Sólrúnu og Hlífari Karlssyni.
Eiður Gunnlaugsson er hér á tali við formann Framsýnar um allt milli himins og jarðar.
Hilmar Valur var að sjálfsögðu á staðnum. Spurning hvort hann hafi verið á gestalistanum!!
Sveinn Aðalsteinsson starfsmaður Völsungs rann á lyktina og fékk sér kaffi og meðlæti með Gústa.