Málmiðnaðarmenn álykta með Þingeyingum

Aðalfundur Félags málmiðnaðarmanna Akureyri (FMA) var haldinn í gær, laugardaginn 26. ferbrúar. Hákon Hákonarson var endurkjörinn sem formaður félagsins. Félagssvæði þess er Akureyri, Fjallabyggð, Dalvíkurbyggð, Eyjafjarðarsveit og aðrir hreppar Eyjafjarðarsýslu, einnig Svalbarðsstrandarhreppur og Grýtubakkahreppur. Þrjár ályktanir voru samþykktar á fundinum. Í fyrsta lagi um uppbyggingu atvinnulífsins í Þingeyjarsýslu, í öðru lagi um Vaðalheiðargöng og í þriðja og síðasta lagi var samþykkt ályktun um áframhaldandi veru flugvallar í Vatnsmýrinni í Reykjavík. Stéttarfélögin í Þingeyjarsýslum taka undir þessar ályktanir um leið og þeir fagna þessum góða stuðningi úr Eyjafirði. Ályktanirnar eru meðfylgjandi.
Ályktun um uppbyggingu atvinnulífsins í Þingeyjarsýslum.
Aðalfundur Félags málmiðnaðarmanna Akureyri hvetur ríkisstjórn Íslands til að stuðla ákveðið að því að stórefla atvinnulífið í Þingeyjarsýslum sem allra fyrst. Aðalfundurinn bendur á að skoðanakannanir meðal íbúanna á undanförnum árum sýna glögglega að þeir setja fram kröfu um að nýting orkuauðlinda héraðsins fari til stórfelldrar atvinnuuppbyggingar á svæðinu. Bent er á að íbúaþróun á Norðausturlandi er neikvæð. Árið 2000 voru íbúarnir samtals 5.700. Í dag eru þeir um 4.900. Þessar tölur sýna að grípa verður til aðgerða, sérstaklega á sviði atvinnumála. Viðamiklar rannsóknir hafa verið gerðar á mögulegri orkuöflun fyrir atvinnuuppbyggingu í stórum stíl í Þingeyjarsýslum og bendir aðalfundurinn á að orkukaupendur hafa sýnt svæðinu áhuga. Aðalfundur Félags málmiðnaðarmanna Akureyri telur að einsýnt að tími framkvæmda er runninn upp í Þingeyjarsýslum.

Ályktun um Reykjavíkurflugvöll
Aðalfundur Félags málmiðnaðarmanna Akureyri, haldinn 26. febrúar 2011 varar ákveðið við hugmyndum um að flytja miðstöð innanlandsflugs frá Reykjavíkurflugvelli. Aðalfundurinn bendir á að á næstu árum rís í höfuðborginni hátæknisjúkrahús, sem ætlað er að þjóna landinu öllu. Mikilvægi nálægðar flugvallarins og sjúkrahússins er ótvírætt að mati aðalfundarins og getur skipt sköpum, auk þess sem flugvöllurinn gegnir lykilhlutverki í öryggisneti landsins. Þá minnir aðalfundurinn að í höfuðborgini eru staðsettar höfuðstöðvar stjórnsýslu landsins, auk flestra opinberra stofnana landsins á sviði viðskipta-, mennta-, menningar- og heilbrigðismála. Sú staðreynd kallar eðlilega á greiðar samgöngur til og frá borginni, öðruvísi getur Reykjavík varla staðið undir nafni sem höfuðborg allra landsmanna. Aðalfundurinn bendir einnig á nauðsyn þess fyrir íbúa höfuðborgarinnar að hafa sem næst sér flugvöll, óvarlegt sé að treysta alfarið á Keflavíkurflugvöll.

Ályktun um Vaðlaheiðargöng
Aðalfundur Félags málmiðnaðarmanna Akureyri, haldinn 26. febrúar 2011 skorar á ríkisstjórn landsins að fram fari sem fyrst forval vegna gerðar Vaðalheiðarganga, þannig að hægt verði að hefja framkvæmdir í sumar. Aðalfundurinn bendir á að öll gögn eru þegar til staðar, auk þess sem sveitarfélögin á svæðinu eru einhuga um mikilvægi væntanlegra jarðganga, auk þess sem mikil samstað er meðal íbúa svæðisins. Göngin munu stórauka öryggi vegfarenda, ekki síst íbúa austan Vaðalheiðar sem þurfa að sækja margháttaða þjónustu, svo sem bráðaþjónustu á heilbrigðissviði um Víkurskarð í dag. Aðalfundurinn bendir á að heimamenn styðja áætlanir um hóflegt veggjald um göngin, þannig að fjárfestingin skili sér til baka á eðlilegum tíma. Þá undirstrikar aðalfundurinn að fyrir liggja jákvæðar úttektir á arðsemi Vaðlaheiðarganga.

Deila á