Aðalfundur STH

Aðalfundur Starfsmannafélags Húsavíkur verður haldinn þriðjudaginn 28. maí kl. 17:00 í fundarsal stéttarfélaganna.

Dagskrá fundarins er eftirfarandi:

1. Venjuleg aðalfundarstörf
a) Kjör á starfsmönnum fundarins
b) Skýrsla stjórnar fyrir liðið starfsár
c) Endurskoðaðir reikningar félagsins lagðir fram til afgreiðslu
d) Ákvörðun félagsgjalds
e) Kosning löggilts endurskoðanda eða endurskoðunarskrifstofu
f) Lagabreytingar, ef þær liggja fyrir
g) Kosning stjórnar, varastjórnar og skoðunarmanna samkvæmt 8. grein
h) Kosning fulltrúa í orlofsnefnd, ferðanefnd og starfskjaranefnd
i) Kosning fulltrúa á þing BSRB
j) Ákvörðun um laun stjórnar, annarra stjórna, ráða og nefnda

2. Önnur mál

Skorað er á félagsmenn að fjölmenna á fundinn. Veitingar í boði.

Stjórn Starfsmannafélags Húsavíkur

Deila á