Jólasveinn ársins 2026

Á jólafundi Framsýnar sem fram fór í gær var að venju kosinn Jólasveinn ársins en þetta er skemmtileg hefð sem viðhöfð hefur verið undanfarin ár. Þá gefst fundarmönnum tækifæri á að kjósa þann einstakling sem hann telur að hafi skarað fram úr í starfi Framsýnar. Í ár var það Jónas Vopni Sævarsson sem sigraði með yfirburðum. Hér má sjá Elísu Dagmar afhenda Vopna viðurkenninguna eftirsóttu sem er glæsilegur jólasveinn. Sagan segir að Vopni hafi fellt tár en það hefur ekki fengist staðfest.    

Deila á