Hér gera menn tvennt í einu

Það fylgir því töluvert álag að starfa fyrir stéttarfélög. Á meðfylgjandi mynd má sjá Ögu vera að undirbúa fjölmennan fund stjórnar og trúnaðarráðs Framsýnar á föstudaginn um leið og hún svarar félagsmanni sem var að velta fyrir sér veikindarétti. Auk stjórnar og trúnaðarráðs er búist við stjórn Framsýnar-ung, trúnaðarmönnum á vinnustöðum, starfsmönnum félagsins og nokkrum öðrum góðum gestum á fundinn á föstudaginn. Að sjálfsögðu þarf að  skreyta salinn en það getur tekið síma þegar starfsmenn þurfa að hafa jólaseríu í annarri hendi og símann í hinni. Aga er hins vegar ekkert venjuleg og veit ekki að því að gera tvennt í einu.

Deila á