Stjórn LÍV átelur breytingar á Loftbrú

Stjórn LÍV var að senda frá sér svohljóðandi ályktun um Loftbrú. Framsýn tekur heilshugar undir með sambandinu enda glórulaus aðför að landsbyggðinni.

„Stjórn LÍV, Landssambands íslenzkra verzlunarmanna, átelur stjórnvöld fyrir boðaðar breytingar á fyrirkomulagi Loftbrúar. Samgöngumál skipta gríðarlega miklu máli fyrir félagsfólk LÍV og Loftbrú er veigamikill þáttur í því að jafna stöðu allra landsmanna og bæta aðgengi landsbyggðar að miðlægri þjónustu í höfuðborginni. Færa má fyrir því gild rök að betra hefði verið að skerpa á reglum um hvernig megi nýta þessa styrki og auka það fjármagn sem fer til þeirra. Markmið um aukin fyrirsjáanleika er augljóslega ekki hugsað út frá þeim sem nýta þjónustuna.  

Stjórn LÍV skorar á stjórnvöld að endurskoða framkomnar hugmyndir, enda hafi þessi breyting veruleg neikvæð áhrif á þau sem búa langt frá miðlægri þjónustu í höfuðborginni.“

Deila á