OH og sveitarfélögin standa vaktina með stéttarfélögunum

Eins og fram hefur komið í fjölmiðlum hefur verkalýðshreyfingin þrýst á stjórnvöld, sveitarfélög, fjármálastofnanir, þjónustu- og verslunareigendur að halda niðri verðlagi. Hvað það varðar hefur Framsýn verið í þéttu sambandi við sveitarfélögin á félagssvæðinu og Orkuveitu Húsavíkur. Félagið hefur undir höndum svör frá Þingeyjarsveit, Norðurþingi og Orkuveitu Húsavíkur þar sem fram kemur að þau ætli sér að standa vaktina með stéttarfélögunum og halda gjaldskrám niðri svo vitnað sé í svar OK þar sem fram kemur: „Stjórn Orkuveitu Húsavíkur samþykkir að hækka gjaldskrá félagsins um 2,5% frá 1. janúar 2027.“ Þessu viðhorfi ber að fagna sérstaklega enda mikilvægt að allir hagsmunaaðilar sem og verkalýðshreyfingin taki höndum saman um að ná niður verðbólgu og alltof háum húsnæðisvöxtum, öllum til hagsbóta. Verkalýðshreyfingin hefur talað fyrir því að sveitarfélög hækki gjaldskrár ekki umfram 2,5% svo forsendur kjarasamninga haldi en þeir renna út í lok næsta árs.

Deila á