Stjórn húsfélagsins í Þorrasölum 1-3 í Kópavogi kom saman til fundar síðasta fimmtudag. Í stjórn sitja Aðalsteinn Árni, Sandra Björk og Helga Rúna. Þetta var síðasti fundur Söndru þar sem hún hefur ákveðið að flytja búferlum í Hafnarfjörðinn en hún hefur verið ritari húsfélagsins til margra ára. Söndru voru þökkuð vel unnin störf í þágu húsfélagsins og reyndar stéttarfélaganna líka en hún hefur verið umsjónarmaður með íbúðum stéttarfélaganna í Þorrasölum undanfarin ár ásamt öðrum en félögin eiga sjö íbúðir í fjölbýlishúsinu. Stéttarfélögin hafa þegar ráðið Gunnlaug Hrannar Jónsson í hennar stað sem umsjónarmann íbúða stéttarfélaganna í Kópavogi. Þá verður kjörinn nýr ritari húsfélagsins á aðalfundi félagsins eftir áramótin.