Töluverðar umræður eiga sér nú stað í fjölmiðlum enda hanga kjarasamningar í lausu lofti. Þann 8. október mun koma í ljós hvort samningum verði sagt upp þar sem stjórnvöld hafa ekki staðið við sitt. Meginmarkmið kjarasamninga sem undirritaðir voru 2024 var lækkun verðbólgu með samstilltu átaki verkalýðshreyfingarinnar, atvinnurekenda, ríkis og sveitarfélaga. Aðilar vinnumarkaðarins gengu frá fjögurra ára kjarasamningi með hófstilltum launahækkunum. Ríki, sveitarfélög, fyrirtæki, verslun og þjónusta gáfu loforð um að ætla að leggja sitt af mörkum og halda aftur af gjaldskrár- og verðhækkunum. Nú er svo komið að forsendur kjarasamninga eru brostnar vegna vanefnda og verðbólgan fer vaxandi milli ára sem kemur sér afar illa fyrir heimilin í landinu, ekki síst verkafólk og þeirra sem minna mega sín í þjóðfélaginu. Í stað þess að bregðast við vandanum velja stjórnvöld að auka enn frekar álögur á almenning sem þarf t.d. á heilbrigðisþjónustu að halda með hækkun á komugjöldum. Fyrr í sumar tilkynnti heilbrigðisráðherra 100% hækkun á komugjöldum sjúklinga á heilsugæslu, sem tækju gildi 1. ágúst. Auk þess var boðað að frá og með 1. september yrði komið á sérstöku komugjaldi fyrir sjúkraþjálfun, iðjuþjálfun og talþjálfun sem verður utan við greiðsluþátttökukerfi heilbrigðisþjónustunnar og kemur því til viðbótar þeirri hámarksupphæð sem sjúklingar greiða fyrir þá heilbrigðisþjónustu sem fellur innan kerfisins. Ekki er að sjá annað en að stjórnvöld ætli áfram að ná markmiðum um hallalaus fjárlög með gjaldtöku- og niðurskurði. Auk þessa voru nýlegar boðaðar frekari hækkanir, m.a. 5,2% hækkun á krónutölugjöldum í fjárlagafrumvarpi og 15,9% hækkun kílómetragjalds. Jafnframt er gert ráð fyrir frekari rýrnun á barna- og húsaleigubótum. Formaður Framsýnar, Aðalsteinn Árni, var í viðtali á Bylgjunni í morgun þar sem staðan í efnahagsmálum var til umræðu. Viðtalið hefur vakið töluverða athygli og fengið mikla hlustun. https://www.visir.is/g/20262941729d/-eg-er-ogedslega-reidur-