Rétt í þessu var Georg Páll Skúlason formaður GRAFÍU – stéttarfélags í prent- og miðlunargreinum, að senda frá sér yfirlýsingu þess efnis að hann hafi ákveðið að gefa kost á sér sem næsti forseti Alþýðusambands Íslands.
GRAFÍA er eitt af aðildarfélögum Rafiðnaðarsambands Íslands og hluti af Fagfélögunum. Tvö þeirra félaga sem mynda GRAFÍU í dag, Hið íslenska prentarafélag og Bókbindarafélag Íslands. Georg hefur áratuga reynslu af störfum fyrir verkalýðshreyfinguna.