Forsetaframbjóðandi í heimsókn

Arnaldur Grétarsson sem er fyrrverandi starfsmaður Alþýðusambands Íslands hefur ákveðið að gefa  kost á sér sem næsti forseti Alþýðusambandsins. Þing sambandsins fer fram í Reykjavík um miðjan október. Arnaldur heilsaði upp á formenn Framsýnar og Þingiðnar í morgun og fór yfir sín helstu áherslumál komi til þess að hann nái kjöri sem forseti Alþýðusambands Íslands. Fundurinn var vinsamlegur og skiptust menn á  skoðunum um málefni verkalýðshreyfingarinnar.

Deila á