Kveðja með söknuði

Ársfundur Landsmenntar fór fram í gær í höfuðstöðvum SA í Borgartúni. Dagskrá fundarins var afar metnaðarfull og fjölbreytt. Farið var yfir starfsemi sjóðsins, ársreikninga, samanburð á rekstrartölum milli sambærilega fræðslusjóða og fróðleg erindi voru flutt um mikilvægi starfsmenntunar fyrir fyrirtæki og einstaklinga. Þá fengu notendur sjóðsins tækifæri á að segja frá sinni upplifun á mikilvægi Landsmenntar, það er stjórnendur Jarðborana og trúnaðarmaður PCC á Bakka, Ingimar Knútsson, sem hefur líkt og fjölmargir aðrir notfært sér sjóðinn til að sækja sér aukna starfsmenntun. Í máli Jarðborana og Ingimars kom fram mikil ánægja með að fyrirtæki og einstaklingar hafi aðgengi að jafn öflugum fræðslusjóði og Landsmennt. Líflegar umræður sköpuðust um efni fundarins. Á fundinum gengu tvö úr stjórn að eigin ósk, einstaklingar sem hafa skilað mjög góðu starfi fyrir sjóðsinn. Þetta eru þau Arnar Sigurmundsson og Sigríður Margrét Guðmundsdóttir sem bæði hafa setið í stjórn fyrir Samtök atvinnulífsins. Voru þeim þökkuð vel unnin störf í þágu Landsmenntar. Þau brugðust við og þökkuðu sömuleiðis vel fyrir sig og sögðust kveðja sjóðinn með miklum söknuði.

Stjórn Landsmenntar er hér með þeim Sigríði og Arnari sem gengu úr stjórn Landsmenntar í gær á ársfundi sjóðsins.
Ingimar Knútsson, trúnaðarmaður starfsmanna hjá PCC á Bakka flutti áhugavert erindi um mikilvægi fræðslusjóða atvinnulífsins fyrir starfsmenn fyrirtækja sem vildu sækja sér frekara nám með fjárhagslegum stuðningi frá fræðslusjóðum.
Formaður Framsýnar var á svæðinu og flutti erindi um tilurð Landsmenntar og rakti sögu sjóðsins og hlutverk, allt frá stofnun hans árið 2000 en Landsmennt fagnaði 25 ára starfsafmæli á síðasta ári. Aðalsteinn Árni er jafnframt stjórnarformaður Landsmenntar.
Deila á