„Miðstjórn Alþýðusambands Íslands telur óskiljanlega þá ákvörðun peningastefnunefndar Seðlabanka Íslands að halda stýrivöxtum óbreyttum. Ákvörðun þessi gengur þvert á fyrri rökstuðning nefndarinnar og er mikið áhyggjuefni með tilliti til áhrifa á hagkerfið og þar með afkomu almennings.
Miðstjórn vekur athygli á að við síðustu hækkun stýrivaxta Seðlabankans í ágúst í fyrra sagði peningastefnunefnd hana nauðsynlega með tilvísun til óvissu um kjarasamninga, spennu í hagkerfinu og undirliggjandi verðbólgu.
Nú liggur fyrir kjarasamningur til langs tíma sem gerður er í nafni stöðugleika. Hagtölur sýna að spenna fer minnkandi í hagkerfinu og að undirliggjandi verðbólga hefur hjaðnað. Án áhrifa húsnæðiskostnaðar mælist verðbólga 3,9% og samkvæmt kjarnavísitölu án áhrifa reiknaðrar húsaleigu mælist hún 3,5%. Sá rökstuðningur sem borinn var fram í ágúst á augljóslega ekki lengur við.
Við þessar aðstæður kallar nákvæmlega ekkert á að stýrivöxtum sé haldið óbreyttum í 9,25%. Þvert á móti blasir við að forsendur eru til þess að hefja lækkun vaxta. Núverandi vaxtastig felur í sér skipulagðan flutning fjármagns frá þeim sem skulda til þeirra sem eiga peningana. Þannig er ákvörðun peningastefnunefndar fallin til að þjóna hagsmunum fjármagnsafla og auka enn ójöfnuð í landinu.
Neyðarástand ríkir á húsnæðismarkaði og telja má víst að fasteigna- og leiguverð muni enn fara hækkandi. Þær hækkanir verða helsti aflvaki verðbólgunnar. Ofurvextir leysa ekki þann vanda.
Algjört getu- og úrræðaleysi ríkis og sveitarfélaga er helsta orsök húsnæðiskreppunnar. Skortstefna hvað lóðir varðar heldur uppi fasteignaverði og þar með skatttekjum sveitarfélaga. Miðstjórn ASÍ telur þá framgöngu ósiðlega. Óþolandi er með öllu að launafólk í landinu beri kostnaðinn af þeim vítahring húsnæðiskreppu, verðbólgu og vaxta sem skortstefnan veldur.
Miðstjórn ASÍ telur að grípa verði þegar í stað til neyðaraðgerða með aðkomu verkalýðshreyfingarinnar, atvinnurekenda, stjórnvalda og samtaka í greininni til að rjúfa kyrrstöðu á húsnæðismarkaði sem er botnfrosinn sökum lóðaverðs og vaxtastigs í landinu.
Miðstjórn minnir á að verkalýðshreyfingin féllst á hóflegar launahækkanir í síðustu kjarasamningum til að stuðla að hjöðnun verðbólgu og þar með lækkun vaxta. Launafólk í landinu krefst þess að ríki og sveitarfélög standi við skuldbindingar sínar og stundi ábyrga hagstjórn til að yfirlýstum markmiðum verði náð.“