Starfsgreinasamband Íslands stóð fyrir formannafundi á Egilsstöðum fyrir helgina. Formaður og varaformaður Framsýnar voru á staðnum og tóku þátt í umræðunni sem fram fór á fundinum. Helstu málefni fundarins voru kjaramál, atvinnumál á Austurlandi og stórframkvæmdir á Íslandi. Miklar og heitar umræður urðu um kjaramál enda allt í uppnámi eftir niðurstöðu gerðadóms varðandi hækkanir til ákveðina ríkisstarfsmanna.
Svohljóðandi ályktun var samþykkt á formannafundi SGS á Egilsstöðum föstudaginn 11. september 2015.
„Formannafundur SGS haldinn á Egilsstöðum 11. september 2015 telur brýnt að endurmeta forsendur þeirra kjarasamninga á almenna markaðnum sem undirritaðir voru í maí síðastliðnum í ljósi niðurstöðu gerðardóms. Dómurinn setur ný viðmið á vinnumarkaði sem eru í verulegu ósamræmi við þau viðmið sem samninganefnd Starfsgreinasambandsins og Flóabandalagið sömdu um.
Í kjarasamningunum frá því í maí var það almenn og víðtæk krafa í samfélaginu að hækka bæri lægstu laun og lyft var grettistaki í þá átt við undirritun samninganna. Niðurstaða gerðadómsins er hins vegar sú að hækka ákveðna hópa háskólamenntaðs fólks hlutfallslega meira en gert var í almennu samningunum. Ekki er tekið tillit til samstöðu um hækkun lægstu launa né skattabreytinga í gerðardómnum. Það eru gríðarleg vonbrigði og lýsir algerum dómgreindabresti að gerðadómur hafi litið algjörlega framhjá þeim leiðbeiningum sem dómurinn átti að vinna eftir til að stuðla að stöðugleika.
Gerðir voru samningar á almennum markaði til þriggja og hálfs árs í maí en ef forsendur bresta eru þeir lausir í febrúar 2016 verði ekkert að gert fyrir þann tíma.“
Sigurður Bessason fór yfir samanburð á kjarasamningum í fjarveru hagfræðings ASÍ. Þróunin er sláandi eins og þessi glæra ber með sér. Ljóst er að forsendur kjarasamninga aðildarfélaga SGS og SA eru brostnar.
Halldór Oddsson lögfræðingur ASÍ fór yfir stórframkvæmdasamninginn og málefni tengd honum.
Austfirðingurinn og varaformaður Framsýnar, Ósk Helgadóttir er hér ásamt þingeyingnum Árna Steinari starfsmanni Starfsgreinasambands Íslands. Afl,starfsgreinafélag bauð fundarmönnum í heimsókn til Seyðisfjarðar sem var til fyrirmyndar.