![saufjarsetur0714 028](http://www.framsyn.is/wp-content/uploads/2014/07/saufjarsetur0714-028-150x150.jpg)
Í gær fór fram kynning á nýgerðum kjarasamningi Launanefndar sveitarfélaga og Verkalýðsfélags Þórshafnar. Kynningin fór fram í íþróttahúsinu á Þórshöfn. Eftir kynninguna hófst atkvæðagreiðsla um samninginn.
Þess má geta að sambærilegur fundur verður á Húsavík á fimmtudaginn kl. 20:00 í fundarsal stéttarfélaganna. Félagsmenn Framsýnar geta kosið um samninginn á Skrifstofu stéttarfélaganna til 21. júlí.
![saufjarsetur0714 028](http://www.framsyn.is/wp-content/uploads/2014/07/saufjarsetur0714-028-1024x682.jpg)
Félagsmenn Verkalýðsfélags Þórshafnar eru hér að kjósa eftir kynninguna í gær.