Gestkvæmt á Skrifstofu stéttarfélaganna

Anna Sophie Liebst frá NHK sem stendur fyrir samstarfsvettvang verslunarmannafélaga á Norðurlöndum sem Landssamband ísl. Verslunarmanna á m.a. aðild að leit við hjá Framsýn á dögunum.

Framsýn á aðild að NHK í gegnum LÍV. Þeir Sigmundur Halldórsson framkvæmdastjóri LÍV og Eiður Stefánsson formaður LÍV voru með henni í för en félagsmenn Framsýnar sem starfa við verslun og þjónustu eru aðilar að Deild verslunar- og skrifstofufólks innan félagsins. Anna Sophie var ánægð með heimsóknina sem og félagar hennar, Sigmundur og Eiður. Það sama á við um formann Framsýnar, Aðalstein Árna, sem tók á móti gestunum.

Deila á