Anna Júlíusdóttir heiðruð

Stjórn Einingar- Iðju ásamt starfsmönnum félagsins gerðu sér ferð til Húsavíkur síðasta föstudag. Eins og fram hefur komið á heimasíðunni fóru gestirnir í heimsóknir í fyrirtæki á staðnum auk þess að fá kynningu á starfsemi Framsýnar. Um kvöldið borðaði hópurinn saman með stjórn og starfsmönnum Framsýnar. Við það tækifæri afhenti formaður Framsýnar, Aðalsteinn Árni, Önnu Júl formanni Einingar-Iðju smá glaðning frá félaginu en hún hefur lengi komið að störfum fyrir verkalýðshreyfinguna og er nú á sínu síðasta kjörtímabili sem formaður félagsins. Anna þakkaði vel fyrir sig.

Deila á