Kveður eftir 46 ára samfellt starf við fiskþurrkun á Laugum

Jakob Haraldsson lét í dag af störfum hjá fiskþurrkun Samherja á Laugum í Reykjadal eftir 46 ára samfellt starf við fiskþurrkun á staðnum.  Í tilefni þessara tímamóta gæddi starfsfólkið sér á tertum með morgunkaffinu og í hádeginu var sömuleiðis slegið upp veislu, Jakobi til heiðurs. „ Ég réði mig til verktakans sem sá um að byggja húsnæði undir fiskþurrkun og málin æxluðust þannig að ég réði mig til Stokkfisks, sem var brautryðjandi í þurrkun fiskafurða hérna á Laugum. Það teygðist sem sagt á veru minni á staðnum, árin eru orðin 46 talsins sem sýnir að hérna hefur mér liðið vel. Ég bý líka tiltölulega skammt frá, þannig að ég get auðveldlega gengið eða hjólað í vinnuna,“ segir Jakob Haraldsson. Fiskþurrkun er mikilvæg atvinnustarfsemi á Laugum, starfsmenn eru um tuttugu. Vinnslan hefur verið á vegum Samherja frá árinu 2011. Fiskhausar og hryggir er falla til hjá fiskvinnslu Samherja á Akureyri eru þurrkaðir þar með heitu lofti. Gestur Geirsson framkvæmdastjóri landvinnslu Samherja færði Jakobi blómvönd fyrir hönd félagsins, með þakklæti fyrir farsælt og langt samstarf.

Frétt þessi er tekin af vef Samherja sem og myndir.  Félagi Jakob fær einnig kærar kveðjur frá Framsýn enda lengi verið félagsmaður í Framsýn stéttarfélagi.

Deila á