Opinn fundur  – niðurstöður úr könnun Vörðu kynntar

Framsýn stendur fyrir opnum fundi fimmtudaginn 16. apríl kl. 17:00 í fundarsal stéttarfélaganna. Á fundinum verða kynntar nýjar niðurstöður úr sérvinnslu Vörðu – Rannsóknastofnunar vinnumarkaðarins um stöðu félagsfólks Framsýnar. Varða leggur árlega fyrir kannanir meðal félagsfólk í aðildarfélögum ASÍ og BSRB. Framsýn óskaði eftir úttekt á stöðu sinna félaga og eru þær settar fram í samanburði við annað launafólk á Íslandi. Fjallað verður um stöðu á vinnumarkaði, húsnæðismarkaði sem og fjárhagsstöðu og heilsu félagsfólks Framsýnar. Kristín Heba Gísladóttir framkvæmdastjóri Vörðu gerir grein fyrir helstu niðurstöðum könnunarinnar sem munu hugsanlega koma á óvart.

Deila á