Miðstjórn Alþýðusambands Íslands (ASÍ) samþykkti eftirfarandi ályktun á fundi sínum í dag, 18. mars 2026:
Miðstjórn ASÍ lýsir yfir þungum áhyggjum af þeirri stöðu sem er að teiknast upp í efnahagsmálum með vaxandi atvinnuleysi og viðvarandi verðbólgu og kallar eftir aðgerðum af hálfu stjórnvalda.
Í stöðugleikasamningunum sem gerðir voru 2024 fór verkalýðshreyfingin fram með ábyrgum hætti á tímum mikillar verðbólgu og efnahagslegrar óvissu. Gerðir voru hóflegir langtímakjarasamningar til fjögurra ára til að skapa fyrirsjáanleika og stuðla að lækkun verðbólgu og vaxta. Samningarnir voru gerðir á grundvelli þess að ríki og sveitarfélög myndu m.a. styðja við barnafjölskyldur, halda aftur af gjaldskrárhækkunum og ráðast í öfluga uppbyggingu á íbúðarhúsnæði. Að sama skapi myndu fyrirtæki sýna ábyrgð og halda aftur af verðhækkunum.
Ljóst er að mörg þeirra loforða sem gefin voru við undirritun kjarasamninga hafa ekki verið efnd. Ekki hefur tekist að tryggja húsnæðisöryggi og ráðast í uppbyggingu íbúðarhúsnæðis fyrir tekjulága m.a. vegna ónógs lóðaframboðs sveitarfélaga. Gjaldskrár ríkis og sveitarfélaga hafa hækkað langt umfram það sem samræmist stöðugu verðlagi og verðhækkanir opinberra fyrirtækja í orkuframleiðslu eru nú vaxandi þáttur í verðbólgu. Þá hafa stórfyrirtæki á neytendamarkaði hvergi haldið aftur af sér í að hækka verð á nauðsynjavörum.
Stýrivaxtahækkun Seðlabanka Íslands er áfellisdómur yfir efnahagsstjórn landsins. Vaxtahækkun færir auknar byrðar á ungt fólk, tekjulágt og skuldsett heimili á meðan stórir hópar eru algjörlega í skjóli. Miðstjórn ASÍ kallar eftir því að stjórnvöld og fyrirtæki sýni ábyrgð og grípi til aðgerða sem stuðla að því að kjarasamningar haldi og markmið samninga um stöðugt verðlag og lækkun vaxta náist.