Formaður Framsýnar átti vinsamlegan og gagnlegan fund með starfsmönnum Orkuveitu Húsavíkur í gær en eins og flestir vita er OH öflugt fyrirtæki í heimabyggð. Benedikt Þór Jakobsson rekstrarstjóri OH gerði grein fyrir starfseminni og framtíðarsýn fyrirtækisins.
Eins og fram hefur komið í fjölmiðlum er mikill áhugi hjá erlendum sem innlendum fyrirtækjum að kanna kosti þess og galla að hefja uppbyggingu á atvinnustarfsemi á Húsavík, það er á iðnaðarsvæðinu á Bakka. OH hefur tekið þátt í þeirri umræðu, meðal annars með því standa fyrir borunum í og við Húsavík eftir heitu og köldu vatni, enda forsendan fyrir því að hægt verði að hefja fiskeldi á landi að nægt vatn sé til staðar. Það á einnig við um aðra atvinnustarfsemi sem er til skoðunar á svæðinu sem er margskonar. Aðalsteinn Árni fór yfir þessi mál með starfsmönnum sem og atvinnu- og byggðamál. Eftir helgina mun hann halda suður á boginn til að ræða við stofnanir og fyrirtæki sem tengjast uppbyggingu á atvinnustarfsemi og samgöngum milli landshluta til Húsavíkur. Nánar um það eftir helgina.
Framsýn hefur beitt sér mikið í atvinnumálum fyrir héraðið. Liður í því er að heimsækja fyrirtæki og stofnanir sem gegna lykilhlutverki í uppbyggingu á svæðinu auk þess að funda reglulega með Birni Gíslasyni verkefnastjóra atvinnuuppbyggingar á Bakka. Hlutverk hans er að ýta úr vör nýjum verkefnum á Bakka við Húsavík, styðja fjárfesta með greinargóðum upplýsingum og samhæfa vinnu lykilaðila að stórum fjárfestingum á svæðinu. Þá hafa fulltrúar Framsýnar oftar en ekki verið fundað með þingmönnum og ráðherrum um byggða- og atvinnumál í Þingeyjarsýslum sem og sveitarstjóra Norðurþings.