Hleðslustöðvar við allar íbúðir

Síðustu daga hefur verið unnið að því að koma upp hleðslustöðvum við allar íbúðir Framsýnar og Þingiðnar í Þorrasölum í Kópavogi, það er í bílakjallaranum. Fyrir voru tvær stöðvar við tvö bílastæði en nú eru þær orðnar sex eins og íbúðirnar.  Gestir á vegum stéttarfélaganna eru ekki rukkaðir sérstaklega fyrir notkun á stöðvunum. Með lyklum af íbúðunum fylgir dropi sem menn geta opnað stöðvarnar með og hlaðið bílana. Allar stöðvar Framsýnar og Þingiðnar eru merktar. Gestum stéttarfélaganna er velkomið að nota stöðvarnar fyrir sína bíla. Aðrar stöðvar í bílakjallaranum eru í einkaeigu og því óheimilt að nota þær.

Deila á