Mannauðssjóðurinn Hekla

Rétt er að minna meðlimi Starfsmannafélags Húsavíkur á Mannauðssjóðinn Heklu. Inni á heimasíðunni er heilmikið af upplýsingum um þá styrki sem sjóðurinn veitir. Ef stofnanir í sveitarfélaginu halda námskeið eða eru að huga að starfsþróun fyrir sitt starfsfólk þá er Mannauðssjóðurinn vettvangur til að sækja um styrki. 

Þetta á líka við um náms- og kynnisferðir. Þá þarf að passa vel að sækja um á fjórða ári frá síðustu ferð og vanda dagskrá og gögn sem eru send með umsókninni. Inni á heimasíðunni er umsóknargátt og í gegnum hana er sótt um styrkina. Athugið að sótt er um á kennitölu sveitarfélagsins þar sem sjóðurinn er vinnustaðasjóður en ekki einstaklingssjóður.

Deila á
Aðalsteinn Jóhannes Halldórsson Fréttir