Skíðagönguspori vígður í Vaglaskógi

Nýr skíðagönguspori var vígður í Vaglaskógi í gær á árlegum fjölskyldudegi UMF Bjarma. Félagið fjárfesti nýverið í sporanum ásamt beltabúnaði og tönn, sem verður sett undir nýtt sexhjól Lands og Skóga. Búnaður af þessu tagi kostar nokkrar milljónir, sem er ansi stór biti fyrir lítið ungmennafélag. Réðst Bjarmi því í fjársöfnun á nýliðnu ári, og lögðu fjölmargir einstaklingar, fyrirtæki og félagasamtök söfnuninni lið. Land og Skógur, sem hefur yfirumsjón með Vaglaskógi kemur til með að sjá um sporann, troða brautir, grisja og huga að öðru því sem tryggir að allar aðstæður verði til fyrirmyndar. Nýi búnaðurinn er afar kærkominn og mun gjörbreyta aðstöðu fyrir skíðagöngufólk og annað útivistarfólk  sem sækir skóginn heim yfir vetrartímann. Framsýn var meðal þeirra sem lögðu söfnuninni lið og vill félagið með því móti efla starfsemi Ungmennafélagsins Bjarma, sem gegnir líkt og önnur ungmennafélög mikilvægu hlutverki í sínu byggðarlagi. Meðfylgjandi myndir voru teknir í veðurblíðunni í Fnjóskadal í gær þar sem fjölmörg mættu í skóginn til að fagna nýja skíðagöngusporanum og gæða sér á gómsætum veitingum í boði Bjarma. Þar  á meðal fulltrúar frá Framsýn var var sérstaklega boðið að vera við vígsluna. Hægt er að nálgast fréttir af sporunum með því að fylgja Skíðagöngubrautir í Vaglaskógi á facebook. Á meðfylgjandi forsíðumynd eru Aðalsteinn Árni Baldursson og Ósk Helgadóttir frá Framsýn og Úla Áradal, Sigríður Árdal og Karl Magnússon frá Umf. Bjarma.

Deila á