Höfðavélar á Húsavík sjá um að hreinsa bílastæði við Skrifstofu stéttarfélaganna. Hér má sjá skemmtilega mynd af Baldri starfsmanni hjá Höfðavélum og Agnieszku hjá stéttarfélögunum hjálpast að við mokstur við skrifstofuna. Vissulega eru snjómoksturstækin sem þau nota mis öflug en þau skila sínu og rúmlega það.