Verðlaunin skiluðu sér í Mývatnssveitina

Sá ágæti veitingastaður í Mývatnssveit, Fish & Chips Lake Mývatn vann til verðlauna, International Fish and Chips Operator of the Year á The National Fish and Chips Awards 2026 sem fram fór á Park Plaza Westminster Bridge í London. Sjá má frétt um málið inn á þeim ágæta vef, husavik.com.

Forsvarsmenn Fish & Chips Lake Mývatn  tóku við verðlaununum í London í vikunni, en fyrirtækið var eitt þriggja í úrslitum í alþjóðlegum flokki, sem besti alþjóðlegi fish and chips staðurinn. Verðlaunin eru veitt af National Federation of Fish Friers og eru ein þau virtustu í heimi á sviði fiskirétta.

Sigurinn er mikil viðurkenning fyrir veitingastaðinn sem opnaði árið 2022. Á veitingastaðnum starfa félagsmenn Framsýnar. Félagið óskar eigendum og starfsfólki til hamingju með viðurkenninguna um leið og skorað er á fólk að líta við hjá Fish and Chips í Mývatnssveit á komandi sumri og njóta veitinga sem gerast ekki betri sbr. þessi verðlaun sem staðfesta gæði staðarins.

Deila á