Stéttarfélögin bjóða upp á sumarferð í Fjörður

Stéttarfélögin standa fyrir sögu-og gönguferð í Fjörður í sumar, og er ferðin fyrirhuguð fyrripart ágústmánaðar. Með í för verður leiðsögumaður sem miðlar upplýsingum um staðhætti og búsetu sem eitt sinn var á þessu svæði. Farið verður á fjallarútu sem leggur upp frá Húsavík snemma morguns og komið er heim að kveldi. Leiðin í Fjörður liggur um Leirdalsheiði til Hvalvatnsfjarðar. Þegar þangað kemur reima menn á sig gönguskóna og rölta yfir hálsana yfir í Þorgeirsfjörð. Áætlað er að gangan taki einn og hálfan tíma að ganga hvora leið, en um er að ræða þægilega gönguleið sem ætti að vera á flestra færi. Að Þönglabakka í Þorgeirsfirði verður staldrað við um stund, þar verður boðið verður upp á grill, því næst verður haldið sömu leið til baka. Fararstjóri verður Ósk Helgadóttir. Ferðin verður auglýst betur síðar á heimasíðu stéttarfélaganna og í Fréttabréfi sem kemur út í júní. Meðfylgjandi mynd er tekin á rústum Kaðalstaða í Hvalvatnsfirði en félögin stóðu fyrir ferð í Fjörður fyrir nokkrum árum, uppselt var í ferðina.

Deila á