Pílusalur Völsungs sem er í Sundlaugarsalnum er opinn flesta daga. Reyndar eru forsvarsmenn Píludeildar Völsungs duglegir við að setja inn upplýsingar um opnunartíma inn á Facebooksíðu deildarinnar.
Þar kemur fram að félagsgjöldin eru:
- 14–18 ára: 10.000 kr.
- 18 ára og eldri: frá 15.000 kr.
- Stakt kvöld: 2.000 kr.
Félagsmenn deildarinnar sem eru í Framsýn og Þingiðn geta notað íþrótta-/heilsueflingarstyrki félaganna upp í æfingagjöldin og fengið þannig allt að 50% niðurgreiðslu. Styrkurinn til félagsmanna fer eftir greiddu félagsgjaldi.
Píludeild Völsungs er ánægð með samstarfið við Framsýn og Þingiðn og hefur komið þakklæti sínu á framfæri við félögin. Stéttarfélögin hvetja alla áhugasama til að mæta í Sundlaugarkjallarann á Húsavík og prófa þessa mögnuðu íþrótt, ekki síst félagsmenn sem fá góða styrki frá stéttarfélögunum stundi þeir íþróttina.