Norðurþing er samstarfsaðili að verkefninu Mitt atkvæði – mín rödd, sem snýr að því að efla kosningaþátttöku innflytjenda.
7.- 8. mars verða haldnar vinnustofur á Kópaskeri þar sem fólk fær tækifæri til að fræðast um sín lýðræðislegu réttindi og hvernig stjórnkerfið á Íslandi virkar.
Helgina eftir, 14.-15. mars, verða sömu vinnustofur haldnar á Húsavík.
Með þessari frétt vilja stéttarfélögin kynna þessar vinnustofur fyrir félagsfólki stéttarfélaganna og öðrum þeim sem hafa áhuga sem verða vonandi sem flestir:
Á vegum Norðurþings er verið að leggja lokahönd á plaggöt með QR kóða sem leiða inn á lendingarsíðu þar sem má finna frekari upplýsingar og þýðingar:
https://www.nordurthing.is/is/thjonusta/fjolmenningarfulltrui/lydraedisleg-thatttaka-innflytjenda
Koma svo – öll með!