Svo skrifar forseti ASÍ: „Íslenskt samfélag hefur lengi byggt styrk sinn á samtali, samráði og gagnkvæmri virðingu á vinnumarkaði. Sú hefð hefur verið hornsteinn stöðugleika, félagslegs öryggis og trausts milli aðila. Nú blasir hins vegar við alvarleg stefnubreyting. Stjórnvöld virðast hafa ákveðið að samtal við verkalýðshreyfinguna sé ekki lengur nauðsynlegt. Í stað þess er gripið til einhliða valdboða sem grafa undan réttindum launafólks og rjúfa þann félagslega sáttmála sem byggður hefur verið upp í áratugi.
Skýrt dæmi um þennan hættulega nýja tíðaranda er frumvarp stjórnvalda um breytingar á atvinnuleysistryggingakerfinu. Frumvarpið felur í sér verulegar skerðingar á réttindum launafólks, eykur óöryggi og flytur ábyrgð og áhættu af samfélaginu yfir á einstaklingana sjálfa – án raunverulegs samráðs við verkalýðshreyfinguna.“
Hver skyldi hafa mælt fyrir þessu frumvarpi á Alþingi þann 27. janúar síðastliðinn? Jú, Ragnar Þór Ingólfsson félags- og húsnæðismálaráðherra. Vissulega er mörgum brugðið að sjá að fyrrverandi formaður VR og varaforseti ASÍ skuli leggjast svo lágt að fylgja slíku frumvarpi úr hlaði sem ætlað er að skerða réttindi þeirra sem verða fyrir atvinnumissi verulega og auka þar með á fátækt í landinu. Sleggjan fræga sem tengist sitjandi ríkisstjórn og ætlað var að ná niður verðbólgunni í einum hvelli, skal nú notuð á verkafólk til að ná niður atvinnuleysinu sama hvað það kostar fyrir alþýðu landsins. Er von að spurt sé, hvar er gamli góði Ragnar Þór talsmaður vinnandi fólks hér á árum áður, sem átti það til að kreppa hnefana til að leggja áherslu á sínar skoðanir verkafólki í vil:
Mannlíf júlí 2019. Ragnar Þór, formaður VR svarar fyrir sig. „Baráttan fyrir réttindum launafólks tekur aldrei enda. Þótt eitthvað ávinnist verður maður stöðugt að vera vakandi og halda áfram að berjast fyrir því að það verði ekki tekið af okkur aftur.“
Framsýn hefur borist þó nokkuð af póstum/símtölum frá fólki sem á ekki til orð yfir aðför stjórnvalda. Svo vitnað sé í póst frá félagsmanni: „Ég held að Ragnar hljóti að hafa selt skrattanum sál sína til að komast inn á Alþingi. Það er með ólíkindum hvað tónninn í honum hefur breyst“
Hver getur ekki tekið undir þessi orð þar sem ríkisstjórnin áformar að skerða atvinnuleysibótaréttinn úr 30 mánuðum í 18 mánuði auk þess sem þrengja á verulega réttindi launþega til að öðlast rétt til atvinnuleysisbóta. Fyrir þessu mælir núverandi félags- og húsnæðismálaráðherra, áður formaður VR og varaforseti ASÍ. Það tók verkalýðshreyfinguna áratugi að tryggja verkafólki þau réttindi sem þau búa við í dag í gegnum Atvinnuleysistryggingasjóð sem nú á að brjóta niður. Leggjum sleggjunni og tökum upp samtal um jöfnuð, samráð og gagnkvæma virðingu á íslenskum vinnumarkaði.