Formaður VR í heimsókn

Halla Gunnarsdóttir formaður VR gerði sér ferð til Húsavíkur í gær til að hitta formann Framsýnar, Aðalstein Árna og formann verslunarmannadeildar félagsins, Aðalstein J. Þess má geta að Halla er einnig þriðji forseti ASÍ en auk forseta sambandsins eru þrír varaforsetar.

Það er alltaf ánægjulegt þegar forystumenn innan hreyfingar á höfuðborgarsvæðinu leggja land undir fót og heimsækja stéttarfélögin á landsbyggðinni til að taka stöðuna. Umræður urðu m.a. um stöðuna í efnahagslífinu, verðbólguna, auknar álögur stjórnvalda, vaxandi atvinnuleysi og frumvörp sem eru til afgreiðslu á Alþingi og tengjast beint réttindabaráttu verkafólks. Því miður er frumvörpunum ætlað að skerða sjálfsögð réttindi ekki síst láglaunafólks, lífeyrisþega og þeirra sem þurfa á atvinnuleysisbótum að halda. Þá urðu umræður um starfsemi LÍV og næsta þing sambandsins, en áhugi er fyrir því innan Framsýnar, að það verði haldið á Húsavík. Jafnframt urðu umræður um starfsemi ASÍ og komandi þing sambandsins í haust en reikna má með líflegu og árangursríku þingi auk þess sem kosið verður í öll helstu embætti á vegum Alþýðusambands Íslands.

Deila á